Yoyoyo! Ég stefni að því að setja inn eina mynd á síðuna hvern mánudag í allan vetur. Eða, já, ég set allavegana eina mynd á hverjum mánudegi en kannski fleiri, kemur í ljós hvernig þetta legst í mig.
Þetta var bara hugmynd sem ég fékk og því er ég ekki enn búinn að taka neina sérstaka mynd fyrir síðuna. Ég ætla þó að opna síðuna með einni skemmtilegri:

Eins og athugull sér þá er þessi mynd tekin við bakka Tjarnarinnar í Reykjavík.
Við Jóhannes skelltum okkur þangað til að gefa betlurum borgarinnar í brauð í gogginn. Á þessari mynd er Jóhannes að gefa honum Arnari brauðbita.
Þetta brauð kostaði okkur mikinn pening því ,,andabrauðið" (gamalt braut sem kostar minna) var búið.
Skemmtilegt móment á myndinni. Minnir mig á málverkið ,,The Creation of Adam" sem Michaelangelo málaði upp úr 1500. ( http://www.globalgallery.com/prod_images/eg-1610-13262.jpg )
Langar að benda á að þú getur alltaf smellt á myndina og séð hana þannig mjöög stóra.
But stay tuned on mondays!