miðvikudagur, 31. október 2007

Er hann kominn?


Eins og sést þá lítur út fyrir að veturinn sé að yfirtaka haustið.
Ég er mjöög ánægður með þessa mynd, haustlitirnir spila skemmtilega með grýlukertunum.

Ég gleymdi að taka fram að ég tek myndirnar á Canon EOS RebelXTi/400d.

Þessi mynd:
Lens EF28-135mm f/3.5-5.6 IS USM
Tv( Shutter Speed ) 1/30
Av( Aperture Value ) 5.6
ISO Speed 200

þriðjudagur, 30. október 2007

Closing up


Eins og sést á þessari mynd er veturinn greinilega að yfirbuga haustið! Framundan eru tímar kulda, einmannaleika og tómarúms...
[Vil minna á að það er hægt að smella á myndina til að sjá hana stærri]

mánudagur, 29. október 2007

Tónleikar

Daginn, þá er komið að næstu mynd.

Fór á tónleika um helgina og tóka þar tvær myndir eða svo. Þetta var frumraun mín í ljósmyndun á tónleikum (þannig lýsingu) og má því segja að þetta hafi verið tilraunastarfsemi og voru myndirnar eftir því.
Hérna eru tvær svona semi ágætar, var ekki alveg nógu sáttur.





That's it today!

fimmtudagur, 25. október 2007

Fyrsta myndin

Yoyoyo! Ég stefni að því að setja inn eina mynd á síðuna hvern mánudag í allan vetur. Eða, já, ég set allavegana eina mynd á hverjum mánudegi en kannski fleiri, kemur í ljós hvernig þetta legst í mig.

Þetta var bara hugmynd sem ég fékk og því er ég ekki enn búinn að taka neina sérstaka mynd fyrir síðuna. Ég ætla þó að opna síðuna með einni skemmtilegri:


Eins og athugull sér þá er þessi mynd tekin við bakka Tjarnarinnar í Reykjavík.
Við Jóhannes skelltum okkur þangað til að gefa betlurum borgarinnar í brauð í gogginn. Á þessari mynd er Jóhannes að gefa honum Arnari brauðbita.
Þetta brauð kostaði okkur mikinn pening því ,,andabrauðið" (gamalt braut sem kostar minna) var búið.

Skemmtilegt móment á myndinni. Minnir mig á málverkið ,,The Creation of Adam" sem Michaelangelo málaði upp úr 1500. ( http://www.globalgallery.com/prod_images/eg-1610-13262.jpg )

Langar að benda á að þú getur alltaf smellt á myndina og séð hana þannig mjöög stóra.


But stay tuned on mondays!