fimmtudagur, 25. október 2007

Fyrsta myndin

Yoyoyo! Ég stefni að því að setja inn eina mynd á síðuna hvern mánudag í allan vetur. Eða, já, ég set allavegana eina mynd á hverjum mánudegi en kannski fleiri, kemur í ljós hvernig þetta legst í mig.

Þetta var bara hugmynd sem ég fékk og því er ég ekki enn búinn að taka neina sérstaka mynd fyrir síðuna. Ég ætla þó að opna síðuna með einni skemmtilegri:


Eins og athugull sér þá er þessi mynd tekin við bakka Tjarnarinnar í Reykjavík.
Við Jóhannes skelltum okkur þangað til að gefa betlurum borgarinnar í brauð í gogginn. Á þessari mynd er Jóhannes að gefa honum Arnari brauðbita.
Þetta brauð kostaði okkur mikinn pening því ,,andabrauðið" (gamalt braut sem kostar minna) var búið.

Skemmtilegt móment á myndinni. Minnir mig á málverkið ,,The Creation of Adam" sem Michaelangelo málaði upp úr 1500. ( http://www.globalgallery.com/prod_images/eg-1610-13262.jpg )

Langar að benda á að þú getur alltaf smellt á myndina og séð hana þannig mjöög stóra.


But stay tuned on mondays!

5 ummæli:

blárbanani sagði...

Þú ert alltaf jafn krúttlegur Steindór minn :D mjög flott mynd ;) en mundu samt hvað ég sagði ;P :D kv Hafdís :D

Maggi sagði...

Hvernig myndavél áttu?

Unknown sagði...

Awesome mynd! Og mjög frumlegt að hafa svona ljósmyndablogg... fylgist pottþétt með =)

sdór sagði...

Canon EOS Rebel XTi/400d

Nafnlaus sagði...

Takk fyrir að búa til aðgáng handa mér;)

Þessi mynd er rosalega flott og litirnir virkilega flottir. Svo flott hvernig hún er á hreifingu, þar sem öndin er alveg að fara að fá bitann sinn....;)